Macron Barrier æfingahanskar
3.990 ISK
Stærðir
Lýsing
Macron Barrier eru svartir æfingahanskar sem halda höndunum heitum á köldum æfingum og í leikjum. Í lófanum og á fingrunum er stamt mynstur sem gefur gott grip, til dæmis þegar þú tekur innkast eða heldur á bolta. Þeir eru með breiðu stroffi um úlnliðinn svo kuldinn kemst ekki inn, og hvíta Macron-merkið er ofan á handarbakinu. Hanskarnir eru mjúkir og þægilegir og henta vel í fótbolta, hlaup eða bara daglega yfir veturinn.
